Skilmálar

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að skila vöru gegn fullri endurgreiðslu. Skilyrði fyrir skilum eru að varan sé ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Sé vara innsigluð skal innsigli hennar vera órofið. Skilafrestur byrjar að líða þegar vara er afhent skráðum viðtakanda. Sé óskað eftir endurgreiðslu skal kvittun fyrir vörukaupum að fylgja með.
Hægt er að óska eftir skilum með því að senda email á logiheildsala@logiheildsala.is

Vinsamlegast lestu þessa skilmála og fyrirvara áður en þú notar þessa vefsíðu. Not þín af þessari vefsíður staðfesta skilyrðislaust samþykki þitt á eftirfarandi skilmálum og fyrirvörum. Ef þú ert ekki samþykkur þessum skilmálum og fyrirvörum þá skaltu ekki nota þessa vefsíðu.

  • Vörur, innihaldsefni og önnur atriði.
    Allt efni sem kynnt er og fjallað er um á þessari vefsíðu (þ.m.t. vörur og verð) getur tekið breytingum án nokkurra fyrirvara eða tilkynninga. Eigandi þessarar vefsíðu, Logi Heildsala ehf., tekur skynsamlegar ákvarðanir í textavali og framsetningu þeirra vara og þjónustu sem í boði er á vefsíðunni. Það er á þína ábyrgð að leggja fram réttar persónuupplýsingar þegar þú átt viðskipti við Logi Heildsala ehf.
  • Þegar þú verslar vörur og þjónustu af Logi Heildsala ehf. gefur þú til kynna að vörurnar verða notaðar skv. þeim leiðbeiningum og upplýsingum sem eru að finna á þeim. Öll misnotkun á vörum og þjónustu sem þú færð á vefsíðu www.fitbudin.is algjörlega á þína ábyrgð.
  • Póstsendingar.

Þegar pantað er, þá verður pöntunin send til heimilisfangsins sem uppgefið er á pöntuninni. Við bjóðum eftirfarandi sendingarmáta: Dropp.

Öll vöruverð á www.fitbudin.is eru án sendingarkostnaðar.
Eftir að pöntun fer frá Logi heildsala ehf. liggur ábyrgðin hjá Dropp. Ef sending glatast eða skemmist skal viðtakandi pöntunar hafa samband við Dropp og krefjast endurgreiðslu eða fá bætur fyrir það tjón er orðið hefur eða endurgreiðslu.

Greiðslu upplýsingar og sendingarmáti.
Viðskiptavinum bjóðast einum  greiðslumöguleika, greiðsla með greiðslukorti.

Viðskiptavinir greiða ávallt pöntunina að fullu áður en varan er afgreidd í póst.

Afgreiðslufrestur og ófáanlegar vörur.
Afgreiðslufrestur pantana sem berast í gegnum vefsíðu þessa er 1-2 virkir dagar eftir að pöntun og greiðsla berst. Berist pöntun um helgi eða á föstudegi þá lengist afgreiðslufrestur sem nemur 1 til 2 helgidögum. Það verður ekki hjá því komist að vörur geta einstaka sinnum verið uppseldar. Komi það fyrir munum við hafa samband við þann er leggur inn pöntunina og kynna honum aðra valkosti, hvenær varan kemur aftur eða endurgreiða honum uppselda vöru að fullu verði þess óskað.

Réttar upplýsingar.
Við reynum eftir bestu getu að tryggja að upplýsingarnar á www.fitbudin.is séu núgildandi, nákvæmar og réttar. Þrátt fyrir tilraunir okkar, þá geta upplýsingar á www.fitbudin.is einstaka sinnum verið rangar, ófullnægjandi eða úreltar. Sem dæmi, þá geta vörur á vefsíðunni verið uppseldar, geta verið með öðruvísi eða breytt innihaldsefni miðað við það sem tilgreint er á síðunni, eða geta verið á öðru verði en tilgreint er á vefsíðunni. Að auki, þá getum við breytt verðum og upplýsingum án nokkurs fyrirvara. Öll vöruverð eru háð gengi íslensku krónunnar, sendingarkostnaði, tollgjöldum og virðisaukaskatti, og geta því tekið breytingum. Ef upplýsingar um þann er pantar vöru og þjónustu á www.fitbudin.is eru ófullnægjandi reynum við að hafa samband við viðkomandi til að hægt sé að afgreiða pöntunina. Takist það ekki verður pöntun ógild.

  • Notkun þessarar vefsíðu.
    Hönnun þessarar vefsíðu, texti, útlit, myndefni, upplýsingar, innihald og annað efni sem hægt er að afrita og niðurhala af þessari vefsíðu eru vernduð með lögum og má ekki nota eins og tilgreint er hér nema með skriflegu samþykkis Fit Food ehf. Þú mátt ekki eiga við eða breyta því efni sem er að finna á þessari vefsíðu, með afritun eða niðurhali, hvorki í auglýsingar né fréttar eða auglýsingar tilgangi. Slíkt brýtur í bága við núgildandi lög og reglur.
  • Tenging við þessa vefsíðu.
    Að útbúa eða viðhalda tengingu við þessa vefsíðu af annarri vefsíðu án skriflegs samþykkis Logi heildsala ehf. er bannað með öllu. Allar tengingar við þessa vefsíðu þurfa að fylgja lögum og reglugerðum..
  • ÁBYRGÐIR.

ALLAR VÖRUR OG ÞJÓNUSTA SEM AFGREIDDAR ERU Í GEGNUM ÞESSA VEFSÍÐU ERU Á ÁBYRGÐ FRAMLEIÐANDA ÞEIRRA, DREIFINGARAÐILA OG SÖLUAÐILA. Logi heildsala Ehf. BER ENGA ÁBYRGÐ Á FULLYRÐINGUM ÞEIRRA VARA SEM ERU Á VEFSÍÐUNNI, HUGSANLEGRA AUKAVERKANNA, MISNOTKUNNAR, RANGS VALS Á VÖRUM EÐA MISSKILNINGS SEM KANN AÐ VERÐA.

  • Breytingar á skilmálum og fyrirvörum.
    Logi heildsala ehf. / fitbudin.is áskilur sér rétt til að breyta skilmálum og fyrirvörum hvenær sem er.
  • Heilsutengdar upplýsingar.
    Upplýsingarnar á þessari vefsíðu eru einungis ætlaðar til að upplýsa og koma ekki í stað ráðgjafar lækna eða annarra heilsuráðgjafa. Þú ættir ekki að nota upplýsingar þessarar vefsíðu til að lækna eða greina heilsuvandamál eða sjúkdóma. Upplýsingar og fullyrðingar vara þeirra sem þú sérð á síðunni hafa ekki fengist staðfest af Matvælastofnun Íslands (MAST) né Lyfjastofnun Bandaríkjanna. Vörur á vefsíðu þessari eru ekki ætlaðar að lækna, greina eða hindra sjúkdóma af nokkru tagi. Þér er ráðlagt að lesa allar upplýsingar á vöru áður en notkun hefst.
  • Vöruskil.
    Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, hún sé ekki sérsniðin þörfum kaupanda, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Niðurtalning hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Varan fæst ekki endurgreidd en boðið er upp á inneignarnótu í verslun fitbudin.is/ Logi heildsala ehf.

Aðrar upplýsingar

  • Ef þú skilur ekki eitthvað af ofangreindu eða ef þú hefur spurningar eða ábendingar, þá vinsamlega hafðu samband við okkur á logiheildsala@logiheildsala.is

Yfirlýsing

  • Logi heildsala ehf. virðir einkamál og áhyggjur viðskiptavina sinna. Þess vegna tökum við persónulegar upplýsingar eins og nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer sem trúnaðarupplýsingar.
  • Hverjir mega nota vefsíðuna.
    Vefsíðan er ekki ætluð til þess að lokka að einstaklinga undir 18 ára aldri. Við söfnum ekki né höldum utan um persónulegar upplýsingar einstaklinga undir 18 ára aldri. Ef þú ert undir 18 ára aldri þá hvetjum við þig til að senda okkur ekki persónulegar upplýsingar um þig. Flestar þær vörur sem eru að finna á vefsíðu okkar eru ekki ætlaðar fólki undir 18 ára aldri.

Gölluð vara

Komi upp sú staða að kaupanda berist gölluð vara er best að hafa samband beint við logiheildsala@logiheildsala.is