Skilmálar

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Vinsamlegast lestu þessa skilmála og fyrirvara áður en þú
notar þessa vefsíðu. Not þín af þessari vefsíður staðfesta skilyrðislaust
samþykki þitt á eftirfarandi skilmálum og fyrirvörum. Ef þú ert ekki samþykkur
þessum skilmálum og fyrirvörum þá skaltu ekki nota þessa vefsíðu.
- Vörur,
innihaldsefni og önnur atriði.
Allt efni sem kynnt er og fjallað er um á þessari vefsíðu (þ.m.t. vörur og verð) getur tekið breytingum án nokkurra fyrirvara eða tilkynninga. Eigandi þessarar vefsíðu, Logi Heildsala ehf., tekur skynsamlegar ákvarðanir í textavali og framsetningu þeirra vara og þjónustu sem í boði er á vefsíðunni. Það er á þína ábyrgð að leggja fram réttar persónuupplýsingar þegar þú átt viðskipti við Logi Heildsala ehf. - Þegar
þú verslar vörur og þjónustu af Logi Heildsala ehf. gefur þú til kynna að
vörurnar verða notaðar skv. þeim leiðbeiningum og upplýsingum sem eru að
finna á þeim. Öll misnotkun á vörum og þjónustu sem þú færð á
vefsíðu www.fitbudin.is algjörlega á þína ábyrgð.
- Póstsendingar.
Þegar pantað er, þá verður pöntunin send til
heimilisfangsins sem uppgefið er á pöntuninni. Við bjóðum eftirfarandi
sendingarmáta: Dropp.
Öll vöruverð á www.fitbudin.is eru án
sendingarkostnaðar.
Eftir að pöntun fer frá Logi heildsala ehf. liggur ábyrgðin hjá Dropp. Ef
sending glatast eða skemmist skal viðtakandi pöntunar hafa samband við Dropp og
krefjast endurgreiðslu eða fá bætur fyrir það tjón er orðið hefur eða
endurgreiðslu.
Greiðslu upplýsingar og
sendingarmáti.
Viðskiptavinum bjóðast einum greiðslumöguleika, greiðsla með greiðslukorti.
Viðskiptavinir greiða ávallt
pöntunina að fullu áður en varan er afgreidd í póst.
Afgreiðslufrestur og
ófáanlegar vörur.
Afgreiðslufrestur pantana sem berast í gegnum vefsíðu þessa er 1-2 virkir dagar
eftir að pöntun og greiðsla berst. Berist pöntun um helgi eða á föstudegi þá
lengist afgreiðslufrestur sem nemur 1 til 2 helgidögum. Það verður ekki hjá því
komist að vörur geta einstaka sinnum verið uppseldar. Komi það fyrir munum við hafa
samband við þann er leggur inn pöntunina og kynna honum aðra valkosti, hvenær
varan kemur aftur eða endurgreiða honum uppselda vöru að fullu verði þess
óskað.
Réttar upplýsingar.
Við reynum eftir bestu getu að tryggja að upplýsingarnar á www.fitbudin.is séu
núgildandi, nákvæmar og réttar. Þrátt fyrir tilraunir okkar, þá geta
upplýsingar á www.fitbudin.is einstaka sinnum verið rangar,
ófullnægjandi eða úreltar. Sem dæmi, þá geta vörur á vefsíðunni verið
uppseldar, geta verið með öðruvísi eða breytt innihaldsefni miðað við það sem
tilgreint er á síðunni, eða geta verið á öðru verði en tilgreint er á vefsíðunni.
Að auki, þá getum við breytt verðum og upplýsingum án nokkurs fyrirvara. Öll
vöruverð eru háð gengi íslensku krónunnar, sendingarkostnaði, tollgjöldum og
virðisaukaskatti, og geta því tekið breytingum. Ef upplýsingar um þann er
pantar vöru og þjónustu á www.fitbudin.is
eru ófullnægjandi reynum við að hafa samband við viðkomandi til að hægt sé að
afgreiða pöntunina. Takist það ekki verður pöntun ógild.
- Notkun
þessarar vefsíðu.
Hönnun þessarar vefsíðu, texti, útlit, myndefni, upplýsingar, innihald og annað efni sem hægt er að afrita og niðurhala af þessari vefsíðu eru vernduð með lögum og má ekki nota eins og tilgreint er hér nema með skriflegu samþykkis Fit Food ehf. Þú mátt ekki eiga við eða breyta því efni sem er að finna á þessari vefsíðu, með afritun eða niðurhali, hvorki í auglýsingar né fréttar eða auglýsingar tilgangi. Slíkt brýtur í bága við núgildandi lög og reglur. - Tenging
við þessa vefsíðu.
Að útbúa eða viðhalda tengingu við þessa vefsíðu af annarri vefsíðu án skriflegs samþykkis Logi heildsala ehf. er bannað með öllu. Allar tengingar við þessa vefsíðu þurfa að fylgja lögum og reglugerðum.. - ÁBYRGÐIR.
ALLAR VÖRUR OG ÞJÓNUSTA SEM AFGREIDDAR ERU Í GEGNUM ÞESSA
VEFSÍÐU ERU Á ÁBYRGÐ FRAMLEIÐANDA ÞEIRRA, DREIFINGARAÐILA OG SÖLUAÐILA. Logi
heildsala Ehf. BER ENGA ÁBYRGÐ Á FULLYRÐINGUM ÞEIRRA VARA SEM ERU Á VEFSÍÐUNNI,
HUGSANLEGRA AUKAVERKANNA, MISNOTKUNNAR, RANGS VALS Á VÖRUM EÐA MISSKILNINGS SEM
KANN AÐ VERÐA.
- Breytingar
á skilmálum og fyrirvörum.
Logi heildsala ehf. / fitbudin.is áskilur sér rétt til að breyta skilmálum og fyrirvörum hvenær sem er. - Heilsutengdar
upplýsingar.
Upplýsingarnar á þessari vefsíðu eru einungis ætlaðar til að upplýsa og koma ekki í stað ráðgjafar lækna eða annarra heilsuráðgjafa. Þú ættir ekki að nota upplýsingar þessarar vefsíðu til að lækna eða greina heilsuvandamál eða sjúkdóma. Upplýsingar og fullyrðingar vara þeirra sem þú sérð á síðunni hafa ekki fengist staðfest af Matvælastofnun Íslands (MAST) né Lyfjastofnun Bandaríkjanna. Vörur á vefsíðu þessari eru ekki ætlaðar að lækna, greina eða hindra sjúkdóma af nokkru tagi. Þér er ráðlagt að lesa allar upplýsingar á vöru áður en notkun hefst. - Vöruskil.
Viðskiptavinir okkar hafa 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að þeir hafi ekki notað vöruna, hún sé ekki sérsniðin þörfum kaupanda, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með. Niðurtalning hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Varan fæst ekki endurgreidd en boðið er upp á inneignarnótu í verslun fitbudin.is/ Logi heildsala ehf.
Aðrar upplýsingar
- Ef þú
skilur ekki eitthvað af ofangreindu eða ef þú hefur spurningar eða
ábendingar, þá vinsamlega hafðu samband við okkur á logiheildsala@logiheildsala.is
Yfirlýsing
- Logi
heildsala ehf. virðir einkamál og áhyggjur viðskiptavina sinna. Þess vegna
tökum við persónulegar upplýsingar eins og nafn, heimilisfang, netfang og
símanúmer sem trúnaðarupplýsingar.
- Hverjir
mega nota vefsíðuna.
Vefsíðan er ekki ætluð til þess að lokka að einstaklinga undir 18 ára aldri. Við söfnum ekki né höldum utan um persónulegar upplýsingar einstaklinga undir 18 ára aldri. Ef þú ert undir 18 ára aldri þá hvetjum við þig til að senda okkur ekki persónulegar upplýsingar um þig. Flestar þær vörur sem eru að finna á vefsíðu okkar eru ekki ætlaðar fólki undir 18 ára aldri.